Skuggar fortíðarinnar
EAN13
9788728386927
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Skuggar fortíðarinnar

SAGA Egmont

Livre numérique

  • Aide EAN13 : 9788728386927
    • Fichier EPUB, avec Marquage en filigrane
    5.99

  • Aide EAN13 : 9788728387078
    • Fichier MP3, libre d'utilisation
    5.99
Maxine átti erfitt uppdráttar sem barn. Móðir hennar, Júlía, ólst upp við
fátækt og giftist ríkum manni án þess að elska hann. Hún eignaðist tvö börn og
var köld í garð þeirra. Þegar Maxine vex úr grasi lendur hún sjálf í
erfiðleikum í ástarmálum. Hún giftist Victori en samband þeirra er henni sem
fangelsi og Victor beitir hana reglulega ofbeldi. Þegar Victor hverfur og
finnst síðar látinn beinast öll spjót að Maxine. Hún hefur ástæðu til að vilja
losna við hann og brátt ganga orðrómar manna á milli sem allir bera Maxine
þungum sökum. Loks er Maxine ákærð fyrir morð og virðast allir hafa snúið við
henni baki, nema gamli vinur hennar, Lee, sem reynist henni haukur í horni.
Netta Muskett (1887–1963) fæddist í Kent á Englandi hún hóf starfsferil sinn
sem stærðfræðikennari og sinnti sjúkraflutningum í fyrri heimsstyrjöldinni.
Síðar, árið 1927, gaf hún út sitt fyrsta skáldverk og varð brátt þekktur
höfundur rómantískra skáldsagnabóka. Hún byrjaði að skrifa um fertugt og gaf
hún út yfir 100 verk á ritferli sínum. Sum verka hennar komu út undir
dulnefninu Annie Hill. Bækur Musketts eru þekktar fyrir grípandi söguþráð,
margslungnar persónur og rómantíska atburðarás. Muskett var talin einn af
farsælustu höfundum rómantískra skáldsagna á meðan hún lifði. Lesendahópur
hennar var stór og voru bækur hennar þýddar yfir á fjölmörg tungumál og nutu
þær vinsælda um allan heim. Netta Muskett lést 76 ára gömul árið 1963 og
entist henni ekki ævin til að sjá öll hennar verk á prenti. Síðasta bókin
hennar kom út árið 1964. Bandaríska félagið The Romantic Novelists'
Association veitti lengi verðlaun sem nefnd voru í höfuðið á Nettu Muskett, en
hún var einn af meðstofnendum félagsins. Bækur hennar höfða til þeirra sem
njóta rómantískra skáldsagna sem fjalla um fjölskyldur, ástir og örlög.
S'identifier pour envoyer des commentaires.